Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fernuflug I

Unglingum í þremur efstu bekkjum grunnskólans var boðið að spreyta sig á því að skrifa ljóð eða örsögur til birtingar á mjólkurfernum.  64 textar eftir þá voru valdir til birtingar og er hægt að sjá þá alla á síðunni „Myndir og textar á mjólkurfernum“.

Verðlaun voru afhent í hófi hjá Mjólkursamsölunni 15. apríl 2002.

Allt frá árinu 1987 hefur félagið Börn og bækur – Íslandsdeild IBBY veitt einstaklingum og stofnunum viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi.

Íslandsdeild IBBY veitir Mjólkursamsölulnni verðlaun fyrir Fernuflugið.
Guðrún Hannesdóttir í stjórn Íslandsdeildar IBBY kynnti Fernuflug, átak sem Mjólkursamsalan stendur fyrir. IBBY þótti sérstök ástæða til að verðlauna þetta framtak sem gerir ungu fólki kleift að koma hugsmíðum sínum á framfæri á óvenjulegan hátt. Þykir framtakið leiða til aukins áhuga á ljóðagerð og ljóðalestri landsmanna, yngri sem eldri.

Guðlaugur Björgvinsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd MS í Norræna húsinu hinn 11. maí árið 2003.

IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök. IBBY deildir eru nú í 60 ríkjum víðs vegar um heim.

Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Mjólkurfernur
Hvað merkir orðið?
Salt

Eitthvað liggur í salti
Eitthvað vegur salt
Að eiga ekki/naumast fyrir salti(nu) í grautinn
Að strá/dreifa salti í sárin

Fleiri orðtök