Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Styrkur til íslenskunáms

Mjólkursamsalan hefur síðan árið 2000 veitt námsmönnum á háskólastigi styrk til rannsókna á íslensku máli.


2000
Á málræktarþinginu afhenti menntamálaráðherra nýjan styrk Mjólkursamsölunnar til háskólanema sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál. Styrkupphæð er 400.000 kr. Gunnar Þorsteinn Halldórsson hlaut styrkinn til rannsóknar sinnar á beygingarlegum og setningarlegum einkennum 1000 algengustu sagna á íslensku. Alls bárust 12 umsóknir um styrkinn. Dómnefnd var skipuð fulltrúum Íslenskrar málnefndar.

2001
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, afhenti á málræktarþinginu styrk Mjólkursamsölunnar, 400.000 kr., Finni Friðrikssyni sem vann að doktorsritgerð við málvísindadeild Gautaborgarháskóla. Rannsókn hans snýst um ýmsar þær breytingar sem margir telja sig verða vara við í fallanotkun og beygingarkerfinu í íslensku.

2002
Forstjóri Mjólkursamsölunnar afhenti á þinginu námsstyrk fyrirtækisins, 400.000 kr., Þórdísi Gísladóttur sem vinnur að licentiat-ritgerð við norrænudeild Uppsalaháskóla um málnotkun tvítyngdra Íslendinga og viðhorf þeirra til málnotkunar.

2004
Baldur Jónsson, markaðsstjóri Mjólkursamsölunnar, afhenti Hönnu Óladóttur, nema í Háskóla Íslands, 500 þúsund króna styrk frá Mjólkursamsölunni á málræktarþinginu. Meginuppistaða verkefnis Hönnu er könnun á viðhorfi til enskra máláhrifa í íslensku. Könnun þessi er hluti af viðamiklu norrænu verkefni þar sem athygli er beint að notkun aðkomuorða í norrænum málum og afstöðu málhafa til erlendra áhrifa.

Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Mjólkurfernur
Hvað merkir orðið?
Peð

Eitthvað er eitrað peð
Að vera lítið peð í tafli /valdatafli einhverra

Fleiri orðtök