Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Gæðastefna

Gæðastefna Mjólkursamsölunnar

1. Mjólkursamsalan grundvallar starfsemi sína á fyrsta flokks hráefni og vandaðri framleiðslu í sátt við umhverfi sitt og íslenska náttúru. 

2. Gæðastefna Mjólkursamsölunnar miðast við að vörur og þjónusta fyrirtækisins uppfylli á hverjum tíma skilgreindar væntingar og þarfir viðskiptavina, samstarfsaðila og eigenda.

3. Mjólkursamsalan ætlar sér forystuhlutverk í stöðugt virkara samkeppnisumhverfi. Hún er leiðandi á sínu sviði hvað varðar vöruþróun, nýsköpun og tæknivæðingu í framleiðslu og þjónustu. Fyrirtækið kappkostar að skila samkeppnishæfri vöru og tryggja viðunandi rekstrarafkomu með vakandi auga fyrir hvers kyns hagræðingarmöguleikum og viðbótarnýtingu tækja og mannafla til margþættrar matvælaframleiðslu.

4. Gæðastjórnun Mjólkursamsölunnar er samstarfsverkefni alls starfsfólks fyrirtækisins. Framkvæmdastjórar þess bera ábyrgð á því ásamt forstjóra að hvatning, þjálfun og upplýsingastrerymi séi eins og best verður á kosið og að fyrirtækið reynist starfsfólki sínu góður vinnustaður. Það er einnig á þeirra ábyrgð að daglegt starf í Mjólkursamsölunni sé í samræmi við þá gæðasýn og – stefnu sem samþykkt hefur verið.

5. Mjólkursamsalan leggur áherslu á að sátt sé um uppbyggingu og rekstur fyrirtækisins og skilningur ríki á mikilvægi þess fyrir íslenska þjóð. Til þess að svo sé þarf að vaka yfir ímynd Mjólkursamsölunnar, varðveita vistvæna framleiðsluhætti og stuðla að eðlilegu upplýsingaflæði um rekstrarumhverfi, samkeppnishæfni og árangur. Á sama hátt er mikilvægt að rækta tengsl fyrirtækisins við fólkið í landinu, íslenska náttúru og menningu þjóðarinnar.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar