Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Minjasafn

Minjasafn Mjólkursamsölunnar er staðsett að Bitruhálsi 1.
Minjasafnið hefur sögulegt gildi og þar er að sjá myndir og gamla muni sem lýsa sögu Mjólkursamsölunnar og mjólkuriðnaðarins á Íslandi.
Mjólkurbrúsi og ausaMjólkurbúðirnar skipa stóran sess í sögu MS, en þær voru á annað hundrað í Reykjavík. Aukin tæknivæðing og gjörbreytt aðstaða hjá almennum matvöruverslunum varð til þess að haustið 1976 var þeim öllum lokað. Í minjasafninu er að finna myndir úr mjólkurbúðunum og muni er tengdust þeim, t.d. vogir sem notaðar voru til þess að vigta skyr, sem selt var eftir vigt og pakkað í smjörpappír.

Umbúðir utan um mjólk hafa breyst mikið á síðastliðnum 60 árum. Mjólkin var fyrst seld í lausu máli og flutt í verslanir í stórum brúsum, sem síðan var ausið úr í þau ílát sem viðskiptavinirnir komu með. Mjólkurbrúsar af ýmsum stærðum (ásamt ausunum) eru til sýnis í safninu. Seinna var mjólkin seld í glerflöskum, en vegna hörguls á þeim í seinni heimsstyrjöldinni var aftur horfið til mjólkurbrúsanna.

Árið 1959 var byrjað að pakka mjólk í hyrnur, áhugaverða nýjung í mjólkurumbúðum frá Tetra Pak í Svíþjóð. Um 1970 komu ferhyrndu umbúðirnar í þeirra stað, en þær hafa verið notaðar síðan.

Í safninu er að finna sýnishorn af mjólkurvinnslumunum frá ýmsum tímabilum, t.d. skilvindur og strokkar, sem sýna þróun þeirra og tæknivæðingu. Þá er þar mjólkurbrúsi sem var í eigu fransks baróns sem fluttist hingað til lands árið 1898 og bjó á Hvítárvöllum í Borgarfirði. Árið 1899 lét hann reisa fjós fyrir 50 kýr ásamt hlöðu þar sem nú mætast Barónsstígur (sem er kenndur við nefndan barón) og Hverfisgata, en þetta var fyrsta steinsteypta húsið í Reykjavík. Verslunin 10/11 er nú í þessu húsnæði.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar