MS Selfoss tekur á móti mjólk frá bændum á Suður –og Suðausturlandi, frá Hellisheiði að Höfn í Hornafirði.
Meðal framleiðsluvara sem koma frá MS Selfossi, eru Skyr.is, skyr.is drykkur, ýmsar tegundir í jógúrt m.a. drykkjarjógúrt AB - mjólk, ABT - mjólk, Biomjólk, Þykkmjólk, Kókómjólk og aðrar G-vörur og margar tegundir eru pakkaðar af safa.
Smjör, Létt og Laggott og fleiri viðbitsafurðir, mjólkurduft og pökkun á mjólk.
MS á Selfossi er stærsta mjólkurbú á Íslandi. Hjá MS á Selfossi starfa alls um 110 manns. Fyrsta heila starfsár búsins var heildarinnlegg mjólkur 1,2 milljónir lítra. Árið 2006 var heildarinnlegg MS á Selfossi um 46.5 milljónir lítra frá 280 framleiðendum (40% af landsframleiðslunni).
Mjólkurbússtjóri: Guðmundur Geir Gunnarsson.
Vöruþróun: Ólafur Unnarsson.
Gæðastjórn: Marjaana Hovi.
MS Selfoss
Austurvegur 65
800 Selfoss
Meira
Fleiri fréttir
Meira
Fleiri nýjungar





