Mjólkursöfnunarsvæðið er frá sunnanverðu Snæfellsnesi í vestri, að Holtavörðuheiði í norðri og að Mosfellsbæ. Mjólkurframleiðendur eru 98, þar af einn með lífræna mjólk og innvegin mjólk til stöðvarinnar eru um 13,9 milljónir lítra.
MS Reykjavík er stærsta neyslumjólkurbú landsins og þar sem framleiddar og pakkaðar ferskvörur, eða um 26 milljónir lítra á ári, svo sem, nýmjólk, léttmjólk, undanrenna, rjómi, fjörmjólk, súrmjólk, ávaxtasúrmjólk, léttávaxtasúrmjólk, lífræn nýmjólk, stoðmjólk og matreiðslurjómi. Þessar vörur eru pakkaðar í fjölbreyttar umbúðir og stærðir.
Mjólkurbússtjóri: Jón K. Baldursson.
Vinnslustjóri: Jón Guðmundsson
Dreifingarstjóri : Þórður Jóhannsson
Forstöðumaður rannsóknarstofu: Geir Jónsson.
Gæðastjórn: Jón Kr. Baldursson.
Viðhalds og tæknideild: Sigurður Gunnar Sigfússon
MS Reykjavík
Bitruhálsi 1
110 Reykjavík
Sími: 569-2200
Fax: 569-2280
Meira
Fleiri fréttir
Meira
Fleiri nýjungar




