Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Starfsmannastefna

Starfsmannastefna Mjólkursamsölunnar

Það er markmið Mjólkursamsölunnar að hjá félaginu starfi á hverjum tíma hæfir og metnaðarfullir starfsmenn. Félagið leggur áherslu á gott og hvetjandi vinnuumhverfi og að starfsmenn fái tækifæri til að eflast og þroskast í starfi.

Mjólkursamsalan leggur áherslu á að starfsfólk eigi möguleika á að þróast í starfi innan félagsins í samræmi við metnað, hæfni og kunnáttu. Starfsfólk er hvatt til að efla færni sína í takt við þær kröfur sem gerðar eru til félagsins.

Okkar Skóli er vettvangur endurmenntunar og símenntunar meðal starfsmanna fyrirtækisins. Fræðsluáætlun Okkar Skóla einkennist af fjölbreyttum námskeiðum og annarri fræðslu í samræmi við óskir starfsfólks og þarfa félagsins á hverjum tíma.

Allir starfsmenn félagsins fara í árleg starfsmannaviðtöl. Starfsmannaviðtöl þessi eru vettvangur skoðanaskipta og leggur grundvöll að sífelldri endurskoðun starfsmanna-stefnunnar og fræðsluáætlunar Okkar Skóla.

Það er stefna félagsins að taka vel á móti öllu nýju starfsfólki og leiðbeina því eins og kostur er. Lögð er áhersla á að kynna nýju starfsfólki innra skipulag félagsins og þjálfa það í því starfi sem það er að taka sér fyrir hendur.

Starfsmenn Mjólkursamsölunnar skulu hafa þekkingu og skilning á aðferðum gæðastjórnunar. Hver og einn starfsmaður er hlekkur í þeirri gæðakeðju sem fyrirtækið leggur áherslu á að viðhalda.

Það er stefna Mjólkursamsölunnar að starfsemi fyrirtækisins hafi sem minnst áhrif á umhverfið. Starfsmenn eru hvattir til góðra verka á sviði umhverfismála, hvort sem þeir er í leik eða starfi.

Áhersla er lögð á að öllum reglum um vinnuvernd og öryggismál sé framfylgt í hvívetna. Starfsmenn eru hvattir til að koma með ábendingar og tillögur um það sem betur má fara og taka þannig ábyrgan þátt í vinnuvernd á vinnustað.

Markviss upplýsingagjöf innan fyrirtækisins stuðlar að góðum starfsanda og starfsvitund meðal allra starfsmanna. Regluleg útgáfa á Mjólkurpóstinum, innanhúsfréttablaði fyrirtækisins, handbók starfsmannsins og upplýsingar á innra neti félagsins tryggir að starfsmenn séu vel upplýstir um stefnu og markmið félagsins.

Lögð er áhersla á að starfsmenn finni sig sem hluta af sterkri og samstilltri heild. Félagslíf starfsmanna, utan vinnutíma, getur skipt verulegu máli í þessu efni og er það því stefna fyrirtækisins að hlúa að og efla starfsemi starfsmannafélags starfsfólks.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar