Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Jafnréttis- og fjölskyldustefna

Jafnréttis- og fjölskyldustefna Mjólkursamsölunnar

Það er stefna Mjólkursamsölunnar að allir starfsmenn félagsins njóti jafnréttis óháð kyni, uppruna, trú og aldri. Til að framfylgja þessari stefnu leggur félagið áherslur á eftirfarandi atriði.

Launajafnrétti
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd sömu laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf . Skal þetta gilda um hvers konar starfskjör eða hlunnindi sem metin eru til fjár sbr. 14. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Launamunur skal þannig aðeins endurspegla mismunandi störf, álag, frammistöðu og markaðsaðstæður .

Starfsþjálfun og endurmenntun
Konur og karlar skulu njóta sömu tækifæra til starfsþjálfunar, sí- og endurmenntunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.

Auglýsingar eftir starfsfólki
Í starfsauglýsingum Mjólkursamsölunnar verði störfin ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð starfsauglýsingar. Fram komi að unnið sé eftir jafnréttisáætlun.

Stöðuveitingar og störf
Gæta skal jafnræðis við ráðningar í störf og jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar s.s. menntun og starfsreynsla. Stefnt skal að því að jafna hlutfall kynjanna í hinum ýmsu störfum.

Þátttaka í verkefnahópum, nefndum og ráðum
Unnið skal markvisst að því að jafna fjölda kvenna og karla í verkefnahópum og í nefndum á vegum Mjólkursamsölunnar.

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Leitast skal við að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.
Karlmenn eru hvattir til að axla eðlilega ábyrgð á málefnum fjölskyldunnar.
Mjólkursamsalan hvetur til þess að félagslíf starfsmanna geri ráð fyrir þátttöku maka og/eða barna þegar það á við.

Kynferðisleg áreitni og einelti
Kynferðisleg áreitni og einelti verður ekki liðin hjá Mjólkursamsölunni. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og að þeir sæti ekki einelti af neinu tagi eða kynferðislegri áreitni.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar