Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Framleiðsla- og pökkun

Hrámjólk til framleiðslunnar berst í mjólkurstöðvar með tankbílum og er henni dælt í gegnum kælikerfi og safnað í geymslutanka. Þaðan fer mjólkin svo inn í vinnsluferlið. Mannshöndin kemur hvergi nærri mjólkinni frá því að hún er komin í tankbílinn uns hún er komin á borð neytenda. Mjólkin flæðir í sírennsli í lögnum um vinnslusalina og er rennslinu stýrt með tölvum.

Öll mjólk sem berst í mjólkurstöðvarnar er gerilsneydd með því að snögghita hana og snöggkæla aftur. Þannig er komið í veg fyrir að í henni leynist sýklar. Mjólkin er gerilsneydd, skilin, hreinsuð og fitusprengd í samhangandi ferli. Fylgst er með gangi vinnslunnar á skjámyndum sem gefa nákvæmar upplýsingar um magn, hitastig og afurðategund í hverjum tanki, flæði gegnum hita- og kælitæki, o.m.fl. Að endingu er mjólkurafurðunum safnað í stóra tanka áður en þær fara til pökkunar í neytendaumbúðir eða áframhaldandi vinnslu s.s. ostagerð.. Fullunnar vörur eru fluttar inn á kælilager þar sem þær bíða útkeyrslu.

Allt framleiðsluferlið lýtur ströngu gæðaeftirliti og unnið er samkvæmt sérstöku eftirlitskerfi sem tryggir að sama vara sé ávallt framleidd á sama hátt þannig að ekki sé munur á henni frá degi til dags. Könnuð eru sýni úr fullunnum vörum til að fylgjast með gæðum og geymsluþoli.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar