Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fyrirtækið > Starfsemi
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Starfsemi

Vöruþróun
Mjólkursamsalan ehf. er markaðsdrifið fyrirtæki sem greinir þarfir neytenda til að geta boðið þeim hollar og fjölbreytilegar matvörur sem framleiddar eru úr íslenskri kúamjólk. Vöruþróun og nýjungar í framleiðslu er mikilvægur þáttur í starfsemi Mjólkursamsölunnar. Á ári hverju koma um 30 nýjungar á markað frá fyrirtækinu.

Rannsókn
Rannsóknarstofur Mjólkursamsölunnar hafa ýmiss konar hlutverkum að gegna, en aðallega því að gæta þess að heilsu almennings sé ekki stefnt í voða með óæskilegum gerlum eða aðskotaefnum. Rannsóknarstofurnar skiptast í tvo hluta, annars vegar gerlarannsóknir og hins vegar efnafræðilegan hluta. Í gerlarannsóknarhlutanum er fylgst með gæðum þeirrar mjólkur sem berst til MS í Reykjavík, svo og geymsluþoli framleiddra vara. Í efnafræðilegum hluta rannsóknarstofanna er fylgst með samsetningu og efnainnihaldi mjólkurvara á hinum ýmsu stigum framleiðslunnar.

Framleiðsla og pökkun
Hrámjólk til framleiðslunnar berst til mjólkurstöðvanna með tankbílum og er henni dælt í gegnum kælikerfi og safnað í geymslutanka. Þaðan fer mjólkin svo inn í vinnsluferlið. Mannshöndin kemur hvergi nærri mjólkinni frá því að hún er komin í tankbílinn uns hún er komin á borð neytenda. Mjólkin flæðir í sírennsli í lögnum um vinnslusalina og er rennslinu stýrt með tölvum.

Öll mjólk sem berst í mjólkurstöðvarnar er gerilsneydd með því að snögghita hana og snöggkæla aftur. Þannig er komið í veg fyrir að í henni leynist sýklar. Mjólkin er gerilsneydd, skilin, hreinsuð og fitusprengd í samhangandi ferli. Fylgst er með gangi vinnslunnar á skjámyndum sem gefa nákvæmar upplýsingar um magn, hitastig og afurðategund í hverjum tanki, flæði gegnum hita- og kælitæki, o.m.fl. Að endingu er mjólkurafurðunum safnað í stóra tanka áður en þær fara til pökkunar í neytendaumbúðir eða áframhaldandi vinnslu s.s. ostagerð. Fullunnar vörur eru fluttar inn á kælilager þar sem þær bíða útkeyrslu.

Allt framleiðsluferlið lýtur ströngu gæðaeftirliti og unnið er samkvæmt sérstöku eftirlitskerfi sem tryggir að sama vara sé ávallt framleidd á samam hátt þannig að ekki sé munur á henni frá degi til dags. Könnuð eru sýni úr fullunnum vörum til að fylgjast með gæðum og geymsluþoli.


Sala og dreifing
MS er markaðsdrifið fyrirtæki sem er leiðandi á íslenskum drykkjar- og matvælamarkaði. Vöruframboði er stýrt í takt við þarfir markaðarins með fjölbreyttu úrvali mjólkurafurða sem uppfylla kröfur neytenda um hollustu og þægindi.

Mjólkursamsalan er eitt stærsta dreifingarfyrirtæki landsins. Bílar félagsins flytja á ári hverju sem nemur um 120.000 tonnum af mjólk frá framleiðendurm til af afurðastöðvanna á ári. Tilbúnar afurðir eru fluttar í stórum stíl til dreifingarmiðstöðva um allt land. Auk þess fer fram staðbundin dreifing til þrjú til fimm þúsund viðskiptavina víðsvegar um allt land.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar