Skólahreysti
Skólahreysti
Mjólkursamsalan hefur frá upphafi verið aðalstyrktaraðili Skólahreysti en það er hreystikeppni sem allir grunnskólar landsins geta tekið þátt í. Skólahreysti hefur vaxið gífurlega frá því að fyrsta keppnin var haldin á vordögum 2005. Þá var sex grunnskólum boðið að keppa í hreystikeppni í Íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Þetta mæltist vel fyrir og sýndu nemendur skólanna þessu framtaki mikinn áhuga. Nú fimm árum síðar er Skólahreysti stærra en nokkru sinni fyrr og taka 120 skólar þátt sem gerir um 720 keppendur. Skólahreysti er stærsta einstaka verkefnið sem Mjólkursamsalan hefur ráðist í og hefur það vakið mikla athygli, bæði meðal nemenda grunnskólanna sem og almennings. Markmið Skólahreystis er að vekja athygli barna og unglinga á hollu mataræði og hreyfingu og jafnframt að gera hreyfingu skemmtilega og eftirsóknarverða.
Skólahreystiblaðið má skoða með því að smella hér




Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...
Meira
Fleiri fréttir
Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar




