Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Samfélagsleg ábyrgð

Mjólkursamsalan hefur um árabil lagt metnað í að styðja við góð málefni. Megináhersla er nú á stuðning við tvö lykilmálefni.

Íslenska er okkar mál
Frá árinu 1995 hefur Mjólkursamsalan beitt sér fyrir eflingu móðurmálsins og leggur fyrirtækið sitt af mörkum til að örva umræðu um íslenskt mál og efla þekkingu á því.
Mjólkursamsalan styður íslenskt mál einkum með þrennum hætti:
  • Með íslenskuábendingum á mjólkurumbúðum.
  • Með því að leggja málvernd lið með beinum fjárframlögum, gjöfum og styrkjum.
  • Með sérstökum verkefnum á borð við ljóðavefinn www.jonas.ms.is sem er stærsta safn náttúruljóða á Íslandi.

Skólahreysti
Mjólkursamsalan hefur frá upphafi verið aðalstyrktaraðili Skólahreysti en það er hreystikeppni sem allir grunnskólar landsins geta tekið þátt í. Skólahreysti hefur vaxið gífurlega frá því að fyrsta keppnin var haldin á vordögum 2005. Þá var sex grunnskólum boðið að keppa í hreystikeppni í Íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Þetta mæltist vel fyrir og sýndu nemendur skólanna þessu framtaki mikinn áhuga. Nú fjórum árum síðar er Skólahreysti stærra en nokkru sinni fyrr og taka 106 skólar þáttí 11 undankeppnum víðs vegar um landið. Skólahreysti er stærsta einstaka verkefnið sem Mjólkursamsalan hefur ráðist í og hefur það vakið mikla athygli, bæði meðal nemenda grunnskólanna sem og almennings. Markmið Skólahreystis er að vekja athygli barna og unglinga á hollu mataræði og hreyfingu og jafnframt að gera hreyfingu skemmtilega og eftirsóknarverða.

Önnur verkefni
Af öðrum verkefnum má nefna að Mjólkursamsalan er í samstarfi við Beinverndarsamtökin og Íþróttakennarafélag Íslands. Ennfremur styður fyrirtækið við aðila á borð við Landslið Matreiðslumeistara, Kaffibarþjónafélagið og ýmis félagasamtök, íþróttafélög og líknarfélög.

Fréttir af fyrirtækinu
Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið,...

Meira
Fleiri fréttir
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar