Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fréttir > Fréttasafn
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fréttasafn - Nýjung frá MS - Dala hringur
26. mars 2010

Nýjung frá MS - Dala hringur


Nýr mygluostur á markað fyrir páska !


Unnendur hvítmygluosta hafa nú nýtt afbrigði úr að velja en á markaðinn er kominn nýr hvítmygluostur frá Mjókursamsölunni, Dala hringur, osturinn er hringlaga hvítmygluostur (penicillium candidum) þar sem búið er að fjarlægja kjarna ostsins og er hann með gati í miðjunni. Lögunin á Dalahring gerir það að verkum að hann þroskast hraðar og verður fyrr tilbúinn til neyslu en aðrir mygluostar á markaði. Osturinn er bragðmildur, mjúkur og kærkomin viðbót í mygluostaflóruna.

Í nafninu Dalahringur er auk lögunar ostsins skírskotað til Dalanna og Búðardals þar sem hann er framleiddur ásamt öllum mygluostum í flóru íslenskra desertosta.

Osturinn er nú fáanlegur í öllum helstu matvöruverslunum landsins.

Til baka
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að samkvæmt niðurstöðum nýlegra neyslukannana koma 6% af heildarsykurneyslu frá mjólkurvörum, en 94% sykurneyslunnar frá öðrum matvælum? (

Meiri fróðleikur