Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fréttir > Fréttasafn
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fréttasafn - Skólaheimsóknir - verðlaunahafar í getraun
19. mars 2010

Skólaheimsóknir - verðlaunahafar í getraun

Vikuna 25.-28. Janúar stóðu yfir skólaheimsóknir og heimsóttu mikill fjölda barna í 8, 9 eða 10 ára bekk Mjólkursamsöluna. Með hverjum bekk komu 1-2 fylgdarmenn.
Farið var með börnin um Mjólkursamsöluna og þeim sýnt ferli framleiðslunnar. Margt annað var gert börnunum til fróðleiks og skemmtunar. Með hverjum hóp fór einn leiðsögumaður sem sýndi börnunum mynjasafnið og svo pökkunarsalinn, svo dæmi sé tekið.Þá mætti Bjarni töframaður á staðinn og var með töfrabrögð sem voru frábær.Börnin fengu einnig að heimsækja ísgerðina og fóru þaðan í fundarsalinn og fengu mjólk, kleinu, eplabita og ís. Í fundarsalnum var búið að setja upp getraun og áttu börnin að geta hversu margar kókómjólkurfernur voru í stæðunni sem búið var að raða upp, við stæðuna upphófust miklar pælingar og spekulasjónir.

Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í getrauninni og kom það í hlut Foldaskóla í Reykjavík, Flataskóla í Garðabæ og Hraunvallaskóla í Hafnarfirði að vinna fyrstu verðlaun þar sem allir þrír skólirnar voru með réttan fjölda, 2880 stk samtals í Kókómjólkurstæðunni.

Börnin í bekkjunum þrem sem unnu fengu sykurskerta kókómjólk sex pakk, kókómjólkurtjald og bíómiða í verðlaun. Mynd af krökkunum úr Hraunvallaskóla í Hafnarfirði vantar en hér fyrir neðan má sjá krakkan úr Foldaskóla og Flataskóla taka á móti sínum verðlaunum.

Á myndinni að ofan má sjá krakkana úr Foldsskóla taka á móti verðlaununum.

Á myndinni hér að ofan má sjá krakkan úr Flataskóla taka á móti verðlaununum.

.

Til baka
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að yfir 80% af magni mjólkurvara sem Mjólkursamsalan selur eru hreinar vörur eða án viðbætts sykurs? (Hér er átt við neyslumjólk, sýrðar v

Meiri fróðleikur