Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fréttir > Fréttasafn
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fréttasafn - Sól hf. kaupir Emmessís hf.
21. maí 2007

Sól hf. kaupir Emmessís hf.

Undirritað hefur verið samkomulag milli Auðhumlu svf., móðurfélags Mjólkursamsölunnar, og Sólar ehf. um kaup þess síðarnefnda á Emmessís hf. Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.

Emmessís er eitt þekktasta vörumerki landsins. Mjólkursamsalan hóf framleiðslu á ísblöndu fyrir ísvélar árið 1954. Sex árum síðar var stofnað sérstakt fyrirtæki um ísframleiðsluna. Framleiðsluvörur Emmessís eru nú nálægt 120 talsins.

Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sólar, fagnar kaupunum á einu þekktasta vörumerki landsins. „Vörurnar eru framleiddar úr hreinum, íslenskum landbúnaðarafurðum sem eiga góða samleið með þeirri vöru sem Sól framleiðir í dag,“ segir Snorri, en fyrirtækið framleiðir ferskan ávaxtasafa. Hann segir að rekstur ísgerðarinnar verði áfram á Bitruhálsi 1 en Sól hefur aðstöðu sína á Lynghálsi 7. Stefnt er að sameiningu félaganna í lok ársins.

Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Auðhumlu, segir söluna á Emmessís eðlilegt framhald af þeim breytingum sem átt hafa sér stað hjá Auðhumlu og dótturfélögum þess. „Við höfum mikla trú á þessum nýja eigendahópi og teljum að hann muni koma með ferska vinda inn í þá rótgrónu og farsælu starfsemi sem Emmessís hefur staðið fyrir í hartnær hálfa öld. Þá er okkur einnig umhugað um að eiga áfram gott samstarf við Emmessís um sölu þess mjólkurhráefnis sem félagið notar.“

Fyrirtækjaráðgjöf SPRON sá um sölu félagsins og verðbréfafyrirtækið Arev fjármagnaði kaupin. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Til baka

Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Dala Auður - nýr mygluost...
 Á dögunum kom á markað nýr mygluostur frá MS . Osturinn er einstaklega mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru mygluosta frá MS....

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að álag á beinin, t.d. við hlaup, hopp og aðra áreynslu, er það sem styrkir þau mest?

Meiri fróðleikur