Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fréttir > Fréttasafn
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fréttasafn - Sameining MBF og MS á dagskrá
10. desember 2004

Sameining MBF og MS á dagskrá

Sameining Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar er komin á dagskrá. Stefnt er að því að ákvörðun um sameiningu þessara tveggja samvinnufélaga mjólkurframleiðenda verði til formlegrar umfjöllunar á aðalfundum félaganna í mars á næsta ári.

Fulltrúaráð MBF og MS samþykktu á fundum sínum 8. og 9. desember sl. tillögu stjórna félaganna um umboð þeim til handa til þess að vinna að sameiningu í samræmi við gildandi lög um samvinnufélög.

Mjólkurbú Flóamanna og Mjólkursamsalan hafa alla tíð starfað náið saman að framleiðslu- og markaðsmálum mjólkur.  Félögin eru sjálfstæð en eignarhaldi og samstarfi er þannig háttað að þau hafa í raun stöðu fyrirtækjasamstæðu.

Á vegum stjórna MBF og MS hefur átt sér stað víðtæk umræða um framtíðarsýn og sameiginlega hagsmuni eigenda félaganna í framhaldi af samþykktum fulltrúaráða þeirra síðastliðið vor. Niðurstaðan er sú að ná megi fram hagræðingu með samruna MBF og MS til hagsbóta bæði fyrir mjólkurframleiðendur og neytendur. Sameinað fyrirtæki muni hafa meiri burði til þess að mæta vaxandi samkeppni.

Með áformum um samruna MBF og MS er haldið áfram á braut hagræðingar í íslenskum mjólkuriðnaði sem meðal annars hefur skilað þeim ávinningi, að verð á mjólk og mjólkurafurðum til neytenda hefur haldist óbreytt frá árinu 2002. 

Innleggjandasvæði MS nær yfir Vestur- og Norð-Vesturland. Innleggjendur mjólkur á svæðinu voru 227 um síðustu áramót. Starfsmenn voru 202

Innleggjendasvæði MBF er Suður- og Austurland að Hellisheiði eystri. Innleggjendur mjólkur á svæðinu voru 366 um síðustu áramót. Starfsmenn voru 144.

Áætlað er að ársvelta MBF og MS í sameinuðum rekstri verði  7.6- 8.00 milljarðar króna.

Stjórnarformenn félaganna kynntu samykktir fulltrúarráða þeirra fyrir stjórnendum, millistjórnendum og deildarstjórum MBF og MS í morgun, og mjólkurframleiðendum var tilkynnt um þær með bréfi, dagsettu í gærdag.

Fréttatilkynning frá fulltrúaráðum MBF og MS, 10. desember 2004

Til baka
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að ostur og mjólk eru eitt af auðugustu kalkgjöfum sem völ er á frá náttúrunnar hendi

Meiri fróðleikur