Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fræðilegar greinar - Hið rétta um transfitusýrur í mjólkurvörum
12. nóvember 2010

Hið rétta um transfitusýrur í mjólkurvörum

Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa myndast við herðingu þeirra. Þetta á m.a. við um vörur eins og Smjörva og Létt og laggott, sem innihalda vissulega jurtaolíu að hluta til, en hún er að öllu leyti óhert og inniheldur því engar transfitusýrur.
Hins vegar eru í mjólkurvörum, eins og t.d. í smjöri, náttúrulegar transfitusýrur í einhverju magni. Það magn er þó talið vera of lítið til að mögulega geta valdið skaða ef miðað er við hefðbundna neyslu þessara afurða. Ennfremur eru gerðir náttúrulegra transfitusýra í mjólkurafurðum ekki þær sömu og verða til við herðingu jurtaolíu og hafa líklega ekki sömu áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma. Jafnvel er talið að hinar náttúrulegu transfitusýrur hafi engin og jafnvel frekar verndandi áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma, en nokkrar rannsóknir hafa verið birtar sem styðja þá kenningu, þó of snemmt sé að fullyrða um slíkt.

Sjá nánar um transfitusýrur hér.

Til baka

Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Dala Auður - nýr mygluost...
 Á dögunum kom á markað nýr mygluostur frá MS . Osturinn er einstaklega mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru mygluosta frá MS....

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að samkvæmt opinberum tölum notar íslenskur mjólkuriðnaður um 3% af þeim sykri sem fluttur er inn til landsins árlega? (Heimild: Hagstofa

Meiri fróðleikur