Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fræðilegar greinar - ab-mjólkurvörurnar - fyrir þinn innri mann
5. maí 2008

ab-mjólkurvörurnar - fyrir þinn innri mann

AB mjólkurvörurab-vörurnar eru þróaðar með það fyrir augum að gegna lykilhlutverki í mataræði nútímafólks. Þær eru svokölluð markfæða sem býr yfir sérhæfðum eiginleikum sem er sérstaklega ætlað að hafa jákvæð áhrif á heilbrigði.
Þær eru næringarríkar og í einu grammi af ab-mjólk eru að minnsta kosti 500 milljón a-gerlar og 500 milljón b-gerlar.

Mikilvægi a- og b-gerla
Með ört vaxandi áhuga fólks og líkams- og heilsurækt hefur þekking þess á næringarfræði að sama skapi aukist. Almenningur gerir sér æ betur grein fyrir mikilvægi hollrar og næringarríkrar fæðu í uppbyggingu líkamns. Hverskonar hreyfing er nauðsynleg en dugar að sjálfsögðu skammt ein sér. Meðal æskilegra fæðutegunda hvers dags eru ab vörur. Auk þess sem þær stuðla að hámarksnýtingu kalks í líkamanum treysta a - og b – gerlarnir mótstöðuafl líkamans gegn ýmsum tilfallandi sýkingum og sjúkdómum.

Líkamar okkar verður stöðugt fyrir áreiti frá óæskilegum þáttum í nánasta umhverfi okkar. Óæskilegar bakteríur og sveppir geta sest að í meltingarveginum og valdið óþægindum og veikt mótstöðuafl líkamans. a- og b-gerlarnir treysta mótstöðuafl okkar gegn slíkum bakteríum. Þeir bæta meltinguna og styrkja um leið innri varnir líkamans.

Þegar eðlilegt jafnvægi í meltingarveginum raskast, til dæmis vegna inntöku sýklalyfja, minnkar forði líkamans af a- og b-gerlum. Neysla ab-mjólkurvara fjölgar aftur þessum mikilvægu gerlum og hjálpar til við að byggja varnarkerfið upp á nýtt.

a- og b-gerlar gegna margþættu uppbyggjandi hlutverki í líkamanum stuðla að betri meltingu draga úr óæskilegum afleiðingum af inntöku sýklalyfja vinna gegn óheppilegum bakteríum og sveppum í meltingarveginum


a-gerillinn (lactobacillus acidophilus) er mjólkursýrugerill sem viðheldur heilbrigðri meltingarflóru.

b-gerillinn (bifidobacterium bifidum) er náttúrulegur gerill í manninum frá fæðingu. Hann er líkamanum nauðsynlegur við varnir og uppbyggingu örverustarfsemi í meltingarfærunum.

Uppskriftir með ab vörum
Árni Þór Arnþórsson, meistarakokkur setti saman nokkrar léttar og hollar uppskriftir sem innihalda ab-mjólkurvörur.

Salat með sætum karföflum, ab-mjólk og fetaosti.
Hentar í raun með hvaða mat sem er. Tilvalið að prófa með grilluðum mat nú þegar sumarið er gengið í garð.

Speltbollur með rifun ab-osti og ólífum.
Hollustu bollur sem smakkast best nýkomnar út úr ofninum.

ab-mangó-, karrí- og sesamsósa.
Sósa sem smakkast einstaklega vel með grilluðum svínasneiðum eða kjúklingi. 

Upplýsingar um ab mjólkurvörur
Hér er hægt að nálgast bækling sem inniheldur fræðandi upplýsingar um ágæti ab mjólkurvara og hvaða uppbyggjandi hlutverki þær gegna.

Til baka
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að samkvæmt opinberum tölum notar íslenskur mjólkuriðnaður um 3% af þeim sykri sem fluttur er inn til landsins árlega? (Heimild: Hagstofa

Meiri fróðleikur