Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Fréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Fréttir - Iðnaðarsalt - Tilkynning
16. janúar 2012

Iðnaðarsalt - Tilkynning

Mjólkursamsalan innkallar fimm vörutegundir
 
Salt sem notað er í vinnslu Mjólkursamsölunnar er vottað matvælasalt. Ein af 6 vinnslustöðvum MS hefur undanfarið fengið afgreitt iðnaðarsalt, þrátt fyrir að hafa pantað matvælasalt. Það var lítið brot af heildarsaltnotkun fyrirtækisins.
Notkun á því hefur verið mjög takmörkuð og bundin við Klípu, Létt og laggott, grjónagraut, hrísmjólk og smyrjanlegan rjómaost.  Matvælastofnun telur að neytendum stafi ekki hætta af notkun þessa salts, efnasamsetning er nær sú sama og í venjulegu matarsalti en framleiðsla og dreifing ekki vottuð með sama hætti.
MS hefur þegar skipt um salttegund í framleiðslu framangreindra vörutegunda og innkallar af markaði það sem framleitt var með þessum hætti.  Salt í allar aðrar vörur MS hefur verið staðlað matarsalt.
Mjólkursamsalan starfar í samræmi við gæðaeftirlitskerfi. Félagið einsetur sér að nýta einungis fyrsta flokks hráefni í framleiðsluna og harmar mjög þessi mistök. Félagið hefur breytt verklagi og krefst nú staðfestingar frá framleiðendum rekstrarvara á að viðkomandi vörur séu vottaðar til matvælaframleiðslu en lætur ekki nægja upplýsingar frá seljendum þessara vara.  
Nýjar vörur stax í vikunni hjá Mjólkursamsölunni !
Í framhaldi af fréttatilkynningu sem send var út í dag.
Á morgun mun hefjast dreifing á nýjum vörum í stað þeirra sem Mjólkursamsalan innkallaði í dag. Þessar vörutegundir verða framleiddar og þeim verður dreift til viðskiptavina í þessari viku. Um er að ræða Klípu, Létt og laggott, grjónagraut, hrísmjólk og smyrjanlegan rjómaost, ásamt ostakökum
 
Nánari upplýsingar fyrir neytendur í síma 569 2200
Til baka
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að kalk sem þú færð í ríkum mæli úr osti og mjólk á mestan þátt í myndun og viðhaldi tanna og beina

Meiri fróðleikur