Fréttir - Landsþekktir íþróttamenn kynna nýjan íþróttadrykk
5. febrúar 2010
Landsþekktir íþróttamenn kynna nýjan íþróttadrykk
Landsþekkt íþróttafólk kemur á næstunni fram í nýjum sjónvarpsauglýsingum sem auglýsa Hleðslu, nýjan íþróttadrykk frá MS. Í auglýsingunum koma fram Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta; Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu; Ragnhildur Sigurðardóttir, afrekskona í golfi og Egill Gillz Einarsson, íþróttafræðingur. Allar auglýsingarnar sýna þetta landsþekkta afreksfólk stunda íþróttir sínar af miklum krafti.
Hleðsla frá MS er nýr ferskur íþróttadrykkur sem inniheldur 100% hágæða mysuprótein, framleidd úr íslenskri mjólk. Skammturinn inniheldur 22 g af próteini. Hleðsla er jafnframt án sykurs og sætuefna og inniheldur agavesafa. Hleðsla hentar vel eftir æfingar og milli mála.
Nánari upplýsingar um vöruna má sjá hér
.jpg)




Fræðilegar greinar
Járnbúskapur ungbarna hef...
Samkvæmt nýrri rannsókn Rannsóknarstofu í næringarfræði um næringu ungbarna kemur fram að miklar breytingar hafa orðið til hins betra á járnbúskap...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - KEA skyrdrykkur ...
Í dag hófst sala og dreifing á nýrri bragðtegund í KEA skyrdrykkjarlínunni. KEA skyrdrykkur með bláberjum. Bláber eru ein helsta uppspretta...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar




