Fréttir - Forstjóraskipti hjá Auðhumlu
5. febrúar 2010
Forstjóraskipti hjá Auðhumlu
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Magnús Ólafsson hóf störf hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík árið 1961 og hefur unnið nánast óslitið fyrir mjólkuriðnaðinn síðan. Hann er mjólkurfræðingur að mennt og hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum og tekið þátt í margvíslegum þróunarverkefnum sem tengjast uppbyggingu mjólkuriðnaðarins hér á landi. Að loknu námi starfaði hann hjá Mjólkursamlagi KEA á Akureyri og síðan hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þá lá leið hans til Mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík þar sem hann var verkstjóri þar til hann varð framkvæmdastjóri Emmess ís árið 1980. Hann tók við starfi forstjóra Osta- og smjörsölunnar árið 2000 þar til starfsemin var sameinuð Mjólkursamsölunni í árslok 2006. Þá varð Magnús aðstoðarforstjóri og síðan forstjóri Mjólkursamsölunnar og forstjóri Auðhumlu.
Einar Sigurðsson tók við starfi forstjóra Mjólkursamsölunnar 1. maí á síðasta ári. Hann hafði verið forstjóri Árvakurs í tvö og hálft ár og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Capacent þar á undan. Hann var um átta ára skeið framkvæmdastjóri stefnumótunar- og stjórnunarsviðs Flugleiða, en starfaði 17 ár hjá félaginu. Einar er með mastersgráðu í stjórnmálafélagsfræði frá London School of Economics og BA gráðu í fjölmiðlafræði. Hann starfaði að námi loknu sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og sjónvarpi, og var fyrsti útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og leiddi þar uppbyggingu útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar.
Stjórn Auðhumlu þakkar Magnúsi óeigingjarnt og fórnfúst starf fyrir mjólkuriðnaðinn síðustu áratugina og bíður Einar velkominn til starfa.
Nánari upplýsingar gefur
Einar Sigurðsson, s. 569 2200
Fræðilegar greinar
Járnbúskapur ungbarna hef...
Samkvæmt nýrri rannsókn Rannsóknarstofu í næringarfræði um næringu ungbarna kemur fram að miklar breytingar hafa orðið til hins betra á járnbúskap...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - KEA skyrdrykkur ...
Í dag hófst sala og dreifing á nýrri bragðtegund í KEA skyrdrykkjarlínunni. KEA skyrdrykkur með bláberjum. Bláber eru ein helsta uppspretta...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að í Manneldismarkmiðum fyrir Íslendinga er ráðlagt að fólk neyti 2-3 skammta af mjólkurvörum daglega? (Heimild: Lýðheilsustöð ? áður Manne
Meiri fróðleikur
Meiri fróðleikur




