Fréttir - Mjólkursamsalan gefur tvær og hálfa
4. desember 2009
Mjólkursamsalan gefur tvær og hálfa
Mjólkursamsalan gefur tvær og hálfa
milljón króna til hjálparstarfs innanlands
Mjólkursamsalan, sem er í eigu 700 bændafjölskyldna um land allt, hefur gefið matvæladreifingu á vegum Mæðrastyrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins tvær og hálfa milljón króna. Þessi félagasamtök sameinast um jólaaðstoð fyrir heimili sem líða skort.
Að sögn hjálparsamtakanna er vaxandi þörf fyrir slíka aðstoð í því erfiða árferði sem nú er. Áætlað er að um 3500 fjölskyldur muni leita aðstoðar samtakanna í ár sem er um 30 % aukning frá fyrra ári. Stór hópur mun vera að koma í fyrsta sinn og því verða þetta þung skref fyrir marga.
Mjólkursamsalan óskar hjálparsamtökunum velfarnaðar við þau verkefni sem bíða þeirra fyrir jólin.
Mynd: Jónas Þórir Þórisson Framkvændastjóri Hjálparstarfs Kirkjunnar og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir Form. Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í hópi nokkura starfsmanna í mjólkurvörudreifingu MS talið frá vinstri; Gopal Gurung, Jaroslaw, Marke, Dev Raj Gurung, Dawid Jeka. Þeir verða að störfum fram á aðfangadag og dreifa meðal annars mjólkurvörum til dreifistöðva hjálparsamtakanna.
Fræðilegar greinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til. Í pokanum eru 370 gr af...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar
Vissir þú að?
Vissir þú að ostur og mjólk eru eitt af auðugustu kalkgjöfum sem völ er á frá náttúrunnar hendi
Meiri fróðleikur
Meiri fróðleikur





