Vöruþróunarstefna MS
Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á árunum 2008-2010 yrði framboð á sykurskertum vörum í vöruúrvali fyrirtækisins stóraukið, og stefnt að því að 30 vörunúmer myndu uppfylla þessar kröfur að þessum tíma loknum. Með sykurskertum vörum er átt við vörur þar sem búið er að draga úr magni viðbætts sykurs eins og kostur er, án þess að nota sætuefni í staðinn. Breytt stefna MS tekur einnig til aukins ávaxtamagns í sýrðum vörum og breyttum skammtastærðum í takt við manneldissjónarmið.
Fyrir 2008 hafa nokkrar sykurskertar vörur sem eru einnig án sætuefna litið dagsins ljós, t.a.m. sykurskert Kókómjólk, þar sem sykurinnihaldið var skert um helming. Einnig má nefna tvær tegundir af sykurskertum jógúrtdrykkjum í flöskum og tvær tegundir af Jógúrtsopa í smáflöskum, en þessar gerðir af jógúrtdrykkjum hafa nú vikið af markaði vegna dræmrar sölu.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af nýjungunum frá MS undanfarna mánuði
KEA skyrdrykkur
Árið 2008 kom einnig á markað KEA skyrdrykkur sem hefur sérstöðu að því leyti að agavesafi, sem er unninn úr mexíkóskum kaktus, er notaður í stað venjulegs hvíts sykurs eða sætuefna. Jafnframt því að innihalda hvorki hvítan sykur né sætuefni hefur KEA skyrdrykkur meira magn ávaxta en aðrir sambærilegir drykkir en ávaxtainnihald í KEA skyrdrykk er allt að 10% samanborið við 3-5% í öðrum drykkjum. KEA skyrdrykkur inniheldur ennfremur meira magn mysupróteina en sambærilegar afurðir. KEA skyrdrykkur er í 250 ml dósum og fæst nú í fjórum bragðtegundum: Með jarðarberjum og bönunum; með hindberjum og trönuberjum; með papaja, ferskjum og ástaraldinum; og með bláberjum. Síðastnefnda tegundin kom á markað vorið 2009.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
FrúTína jógúrt
Nýr vöruflokkur kom á markað frá MS í upphafi árs 2009, Frútína jógúrt. Nafn vörunnar vísar í hátt ávaxtainnihald jógúrtarinnar sem er þrisvar sinnum meira en í hefðbundinni jógúrt, eða 20%. Jógúrtin er verulega fitu- og sykurskert og er bragðgóður kostur fyrir þá sem vilja hollar og næringarríkar mjólkurvörur.
Frútína inniheldur einungis 3% af hvítum sykri sem er um 63% minna en í hefðbundinni jógúrt. Fituinnihald Frútínu er aðeins 1% sem er töluvert minni fita en í hefðbundinni léttjógúrt. Viðbættur ávaxtasykur í Frútínu er 2% og jógúrtin er án viðbættra sætuefna.
MS býður upp á þrjár bragðtegundir af Frútínu; með jarðarberjum, ferskjum og ástaraldinum, bláberjum og jarðarberjum í 175 g dósum
.jpg)
Krakkaskyr
Fyrsta varan sem kom á markað eftir að MS kynnti um markmið sín í ársbyrjun 2008 um aukið framboð vara með minni sykri og án sætuefna var Krakkaskyr sem var markaðssett þá um sumarið í fjórum bragðtegundum. Samanlagt magn af viðbættum sykri og ávaxtasykri er 30% minna en í hefðbundnu skyri. Engin sætuefni eru í Krakkaskyri. Þetta er fyrsta varan sem MS setur á markað þar sem magn ávaxta er aukið verulega ásamt því að skerða sykurinn. Ein af tegundunum var reyndar hrein en ávaxtamagnið í hinum var 20% af heildarmagninu, sem er u.þ.b. þrisvar sinnum meira en í sambærilegum afurðum hérlendis og erlendis.
Krakkaskyr fæst bæði hreint og í þremur bragðtegundum, með jarðarberjum, bönunum og ferskjum. Hreina skyrið inniheldur engan viðbættan sykukr eða sætuefni. Krakkaskyr er í handhægum 150g umbúðum og fylgir skeið með í lokinu.
Krakkaskyr - komdu út að leika:
Mjólkursamsalan hefur á undanförnum árum lagt áherslu á að styðja við hreyfingu barna, meðal annars sem stærsti styrktaraðili Skólahreystis. Slagorð Krakkaskyrs er Komdu út að leika þar sem gömlu leikirnir eru rifjaðir upp og er ætlað að hvetja börn til hollrar hreyfingar og útiveru.
Smelltu hér til að nálgast bækling um Krakkaskyr.




Fjörostur 9%
Að síðustu má geta þess að á vormánuðum 2009 kom á markað nýr fitulítill Fjörostur frá MS. Við framleiðslu hans er stuðst við nýja tækni sem gerir kleift að nýta mysu sem annars fellur til við ostagerðina. Þessi tækni byggir á fjölþrepa örsíun og úr mysunni verður til nokkurs konar mysupróteinþykkni, sem hefur m.a. þá eiginleika að gefa vöru mýkt og rúnnað bragð líkt og fita gerir en án þess að innihalda örðu af fitu. „Með þessari nýju framleiðslutækni hefur tekist að framleiða brauðost sem inniheldur einungis 9% fitu og er þar með fituminnsti brauðosturinn á markaðnum.
Fjörostur er jafnframt kalkríkur auk þess sem hann inniheldur hátt hlutfall mysupróteina sem eru sérstaklega hentug til vöðvauppbyggingar. Fjörosturinn dregur nafn sitt af Fjörmjólk sem er einstaklega fitulítil en jafnframt próteinrík.
-(2).jpg)
Í kjölfarið af nýrri vöruþróunarstefnu MS sendi fyrirtækið frá sér í nóvember í fyrra samantekt með áherslum fyrirtækisins varðandi hollustu og heilbrigði neytenda. Þar kom m.a. fram hin nýja vöruþróunarstefna MS og upplýsingar um heilsueflandi aðgerðir mjólkuriðnaðarins.
Áherslur MS má sjá hér
Samantekt
Af þessari upptalningu að ofan má sjá að frá því að ný vöruþróunarstefna MS var kynnt í upphafi árs 2008 hafa 14 ný vörunúmer í ferskvöruhlutanum litið dagsins ljós þar sem innihald viðbætts sykurs er skert verulega án þess að nota sætuefni, eða aðrir sætugjafar á borð við agavesafa eru notaðir. Ef sykurskert Kókómjólk er talin með eru þessar vörur þá núna 15 talsins, en einnig má benda á að 4 eldri vörunúmer í drykkjarjógúrt sem falla undir þessa skilgreiningu er búið að taka af markaði vegna dræmrar sölu.
Þær nýjungar sem að ofan er lýst sem og þessi nýja stefna Mjólkursamsölunnar hefur fengið góðar viðtökur neytenda og er okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut. Fjölmargar nýjungar sem eru sykurminni og með meira af ávöxtum eru í farvatninu hjá MS og munu þær líta dagsins ljós á næstu misserum.
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar
Meiri fróðleikur




