
Vissir þú?
• Að í líkamanum eru um 650 vöðvar. Þegar þú brosir notar þú 17 vöðva. Þegar þú ert með fýlusvip notar þú 43!
• Að það er hægt að teyma kú upp stiga en ekki niður hann.
•Að yfir daginn þrýstast þófarnir milli hryggjarliðanna saman svo að við erum styttri þegar við förum að sofa heldur en þegar við vöknum á morgnana.
• Að hárið á höfði þér vex í 2-6 ár og venjulega detta 70-100 hár af daglega. Augnhárin endast hins vegar einungis í 10 vikur.

• Að hraði taugaboða er allt að 300 km á klukkustund!
• Að lærbein í fólki eru sterkari en steinsteypa en þó er kjálkabeinið harðasta beinið í líkama okkar.
• Að auga strútsins er stærra en heili hans.
• Að í mannslíkamanum eru 96.000 kílómetrar af æðum. Þær gætu náð tvisvar og hálfum sinnum umhverfis jörðina.
• Að vindhraðinn þegar þú hnerrar er meiri en í fellibyl eða allt að 160 km á klukkustund!
• Að Kleópatra var sögð fegurst allra kvenna af því að hún baðaði sig alltaf í mjólk.
• Að geimfarar eiga erfitt með að gráta úti í geimnum. Þar sem ekkert þyngdarlögmál er geta tárin ekki runnið og því svífa droparnir bara um!
• Að fleira fólk notar bláa tannbursta en rauða.
• Að hjartað slær um það bil 100.000 sinnum á dag - þegar þú hvílist.
• Að þú fjórfaldar brennsluna við að hjóla, sexfaldar hana við að skokka og áttfaldar hana við að hlaupa.
• Að þó heilinn geti greint á milli 50.000 mismunandi bragðtegunda er ólíklegt að þú getir greint á milli eplamauks og laukstöppu ef þú heldur fyrir nefið og lokar augunum.
• Að um þrír fjórðu hlutar af hitatapi líkamans verða frá höfðinu á þér. Áttu góða húfu?
• Að hver maður hefur alls um fimm milljónir hára og þau vaxa um 12 millimetra á mánuði.
• Að hver manneskja hefur sitt eigið sérstaka tungufar sem er ólíkt öllum öðrum rétt eins og fingraför.
• Að tannskemmdir eru útbreiddasti sjúkdómur í veröldinni.
• Að börn fæðast með 300 bein en þau eru ekki nema 206 í fullorðnu fólki. Líkami ungra barna vex mjög hratt og 94 þessara beina gróa saman við önnur bein á fyrstu árunum.
--------------------------------------------------------------------------------

Heilabrot
reikningsdæmi - gátur - þrautir - spurningar
Reikningsdæmi
- þú finnur svörin neðar á síðunni.
1.
Bóndi átti sautján sauði en allir nema níu drápust. Hvað átti hann marga eftir?
2.
Hve oft geturðu dregið töluna 5 frá 25?
Svör við reikningsdæmum:
1. Níu.
2. Einu sinni. Eftir fyrsta skiptið ertu ekki lengur með 25!
Gátur
- þú finnur svörin neðar á síðunni.
1.
Maður byggir sér hús. Allar fjórar hliðar þess snúa í suður. Björn gengur fram hjá húsinu. Hvernig er hann á litinn?
2.
Hvaða fjall var hæsta fjall í heimi áður en Mount Everest fannst?
3.
Þú stendur á suðurpólnum og snýrð í norður. Í hvaða átt færirðu ef þú stigir eitt skref aftur á bak?
4.
Þú sérð minna eftir því sem meira er af því. Hvað er átt við?
5.
Því meira sem af er tekið, því stærra verður það. Hvað er þetta?
6.
Sá sem býr það til selur það.
Sá sem kaupir það notar það aldrei.
Sá sem notar það veit aldrei af því að hann er að nota það.
Hvað er það?
7.
Hvað getur farið upp og niður án þess að hreyfast?
Svör við gátum:
1. Hvítur. Húsið stendur á norðurpólnum.
2. Mount Everest.
3. Í norður. Frá suðurpólnum liggja allar leiðir í norður.
4. Myrkur.
5. Gat.
6. Líkkista.
7. Hitastig.
--------------------------------------------------------------------------------
Skemmtilegar þrautir í Krákustiganum. Smelltu á þrautir og lausnir.
http://www.khi.is/%7Estae/stikkord.htm
Tangramþrautir:
http://www.tangram-digital.de/solo.html
--------------------------------------------------------------------------------
Spurningar og svör
Spurning:
Í hvaða átt er niður?
Svar:
Það fer bara eftir því hvar þú ert. Jörðin er hnöttótt og frá miðju hennar liggja allar leiðir upp. Þannig má líka segja að það séu óendanlega margar leiðir niður. Ef þú lætur einhvern hlut detta í gólfið fellur hann niður, í átt að miðju jarðar. Niður er í nýja átt fyrir hvern nýjan stað sem þú heimsækir. En úti í geimnum er ekkert þyngdarafl og því er ekki til neitt þar sem heitir upp eða niður!
Spurning:
Af hverju eru hundar ekki góðir dansarar?
Svar:
Af því að þeir hafa tvo vinstri fætur.
Spurning:
Samkvæmt rannsóknumeru í einni tuggu af munntóbaki 2-5 milljónir agna af
a) skordýrahlutum
b) sandi
c) mosa?
Svar:
Sandi. Með tímanum slípar hann tennurnar alveg niður í góm.
Spurning:
Veistu af hverju síamstvíburarnir fóru til Englands?
Svar:
Svo hinn fengi einhvern tímann að keyra!
Spurning:
Hvaða líkamshluti finnur minnst fyrir þrýstingi?
Svar:
Það er púðinn sem við sitjum á - rassinn! Það er eins gott að hann er ekki mjög viðkvæmur. Annars væri svo erfitt að setjast!
--------------------------------------------------------------------------------
Vangaveltur
spurningar - en engin svör!
• Fær fólk með gervitennur holur í þær ef það notar gervisykur?
• Af hverju er aldrei á tali þegar maður hringir í skakkt númer?
• Verða fiskar þyrstir?
• Hvernig veistu hvort ósýnilega blekið er búið?
• Ef Guð getur allt, getur hann þá búið til stein sem er svo stór að hann getur ekki lyft honum sjálfur?
• Fyrst spegill víxlar vinstri og hægri, af hverju víxlar hann þá ekki því sem snýr upp og niður?
• Hitabrúsar geta haldið bæði heitu og köldu. En hvernig vita þeir hvort þeir eiga að gera?
• Þegar eitthvað upplitast í sólinni, hvert fara þá litirnir?
• Af hverju getur maður ekki kitlað sjálfan sig?
• Af hverju dansa ballerínur á tánum? Af hverju eru ekki bara ráðnar stærri ballerínur?
• Það er ekki hægt að eiga allt. Hvar ætti maður að geyma það?
• Kemur mjólk út um nefið á kúnum þegar þær hlæja?
--------------------------------------------------------------------------------
Tilvitnanir og spakmæli
Hvort sem þú heldur að þú getir eitthvað eða getir það ekki, þá hefurðu yfirleitt rétt fyrir þér.
- Henry Ford
Vertu alltaf einlægur - líka þegar þú meinar það ekki!
Vertu hamingjusamur á meðan þú lifir því þú ert lengi dauður.
- Skoskur málsháttur
Hugrekki er að vera hræddur en halda samt áfram.
Mér finnst prófanir á dýrum hræðilegar. Þau verða svo voðalega taugaveikluð og svara öllu vitlaust.
Köttum finnst menn vera nytsamleg húsdýr.
Ég hugsa aldrei um framtíðina. Hún kemur nógu fljótt.
- Albert Einstein
Til að þekkja sitt eigið mikilvægi ætti maður að eiga hund sem dýrkar mann og kött sem lætur eins og maður sé ekki til.
Ég fæddist mjög ungur.
- Groucho Marx
Hér áður fyrr tók ég öllu með opnum huga en heilinn í mér var alltaf að detta út.
--------------------------------------------------------------------------------
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri nýjungar






